23. febrúar, 2009
Ég hitti blaðakonu frá Times skömmu eftir hrun í fyrra. Við hittumst á Sægreifanum og ég plataði hana til að fá sér hrefnuspjót. Hún hafði verið að skemmta sér kvöldið áður og varð föl í framan og skrapp á klósettið – hrefnan kannski ekki það besta sem menn fá við þynnku. Greinin var samt á jákvæðum nótum þótt hún hafi verið skrítin - Iceland is still a good place to party. Í október var nægt hvalkjöt fyrir þá sem vildu éta hvali en málefnið var ekki í umræðunni. Núna á að veiða hvali en ekki nógu marga til að hafa áhrif á fiskistofna. Markaðurinn er ekki nógu stór til að bæta efnahag þjóðarinnar og birgðir hafa hlaðist upp í Japan vegna ríkisstyrkra veiða þar í landi. Þeir hafa verið sakaðir um að mala það í hundafóður. Þetta er einhverra hluta vegna eitthvað sem höfðar til íslenskra karlmanna, hrunið er flókið og það er sælt að geta gripið í eitthvað sem maður skilur. Miðaldra menn fara í ræðustól á Alþingi og rökræða um hvali á meðan fólk er að missa hús og vinnu og landið æruna. Það er merkilegt að sjá hvernig stjórnmálamenn setja mál á dagskrá og hvernig venjulegt fólk fylgir eftir. Allt í einu tala menn og hugsa um eitthvað sem enginn var að tala eða hugsa fyrir nokkrum mánuðum. Allt í einu rífast menn og rökræða eins og þeir ættu lífið að leysa. Ég hef ekkert hugsað um lóur mjög lengi, ekki síðan í ágúst að minnsta kosti og ég hef ekki talað við vini mína um lóur og ég hef ekki rifist um lóur. En allar fermingarveislur færu á hvolf ef við leyfðum sjálfbærar veiðar á þeim. Ef allir Íslendingar þola umfjöllun um hvali í klukkustund þá hefur þjóðin eytt sem nemur 33 mannárum í þessa vitleysu eða rúmlega 100 starfsárum. Á 100 starfsárum væri hægt að gera margt gáfulegt og gagnlegt. Semja nýja stjórnarskrá, skrifa 40 skáldsögur, klára 10 doktorspróf. Stjórnmálamenn setja mál á dagskrá og við tölum og tölum og verðum heimskari með hverjum deginum. Í stað þess að hugsa um fluguhnýtingar, uppeldi, ítölsku endurreisnina, skammtafræði eða förum út og mokum langan skurð þá er lífi okkar sóað í bull og vitleysu.
Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
20. febrúar, 2009

Ég hef stundum ekið með erlenda blaðamenn Sæbraut og Borgartúnið sem ég segi þeim að heiti Boulevard of Broken Dreams. Þarna er Höfði, þar féll kommúnisminn, þarna er Kaupþing í næsta húsi. Þar féll Kapítalisminn. Þarna gnæfir turninn tómi – hann hýsir sálir verðbréfamiðlara sem aldrei fæddust. Neðar eru höfuðstöðvar Glitnis – rústir reistar á rústum Sambandsins. Núna er Glitnir orðinn Íslandsbanki aftur. Ég tók þátt í samkeppni ásamt teymi arkítekta um endurbætur á höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand árið 2005, sem við reyndar unnum. Tillagan var ekki byggð – eða hefur enn ekki verið byggð vegna þess að Glitnir fékk stóru strætólóðina og fór í aðra keppni með býsna útópískri niðurstöðu. 
Það verður eflaust rannsóknarefni sagnfræðinga að bera saman þessar tillögur, 2005 annarsvegar og hin frá árinu 2007.
Lesa meira …
Skráð í Arkítektúr, Fréttir, Ýmislegt | 1 athugasemd »
19. febrúar, 2009
Hvíta duftið – innspýting fyrir hagkerfið.
Ímyndum okkur að við þyrftum að útskýra sjávarútveg fyrir manni sem þekkir ekki fyrirbæri eins og ,,haf”, ,,fisk” eða ,,bát” eða ,,slor”. Það myndi ganga frekar illa. ,,Já – Íslendingar þeir veiða handa og fótalaust dýr sem er kallað fiskur – en það syndir í svokölluðu hafi, það er saltur vökvi sem umlykur landið. Fiskar eru veiddir af mönnum sem fara út á einskonar málmskeljum sem fljóta á vatninu.” Það má alveg ímynda sér svona samtal við einangraðan ættbálk í Sahara.
Lesa meira …
Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »
19. febrúar, 2009

Elín Freyja Canon EOS 5D Mark II, EF 135mm f/2.0
Það er ekki leiðinlegt að eiga ljósmyndara eins og Chrissa fyrir vin. Hér er mynd sem hann tók um helgina af Elínu Freyju dóttur minni. Flateyjarferðir vinahópsins verða að sjálfstæðum listaverkum í meðförum hans og allir líta út eins og meðlimir í norsku konungsfjölskyldunni. Annars hefur Chrissi alltaf tekið hið opinbera höfundarportrett af mér, hann átti forsíðumyndina á bókinni Maður undir himni, hálfa forsíðuna á Engum smá sögum – frumútgáfu en pabbi hans átti kápumyndina á LoveStar sem Jón Sæmundur vann síðan með. Vefsíðan hans er með þeim skemmtilegri, blanda af hugleiðingum og nördagreinum um ljósmyndun og myndvinnsluforrit.
Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
6. febrúar, 2009

Víkin sem Reykjavík er kennd við liggur undir bílastæði.
Margir spyrja sig þessa dagana þegar allt er hrunið og ekki verður byggt á lóð Landsbanka Íslands á stóra malarplaninu milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu. Malarplanið ljóta var ekki alltaf svona ljótt og tilgangslaust. Það var einu sinni fullt af húsum. Og það var ekki aðeins fullt af húsum heldur var þarna einu sinni Vík. Og hvað er svona merkilegt við Víkina sem hefur verið fyllt upp í? Jú – hún er líklega sú Vík sem Reykjavík er kennd við. Lesa meira …
Skráð í Arkítektúr, Fréttir | 3 athugasemdir »
5. febrúar, 2009
Indriði H. Þorláksson skrifar grein um efnahagsleg áhrif stóriðju og eru niðurstöður hans forvitnilegar: ,,Í heild má segja að efnahagslegur ávinningur Íslands af starfsemi stóriðjuvera sé lítill og hafi farið minnkandi á síðustu árum. Hann er nú vart meira en 0,1 – 0,2% af þjóðarframleiðslu fyrir hvert álver. Arður af íslenskum auðlindum kemur aðallega fram í hagnaði iðjuveranna og rennur vegna lágra skatta að mestu ósnertur í vasa hinna erlendu eigenda.”
Það er athyglisvert að hér keppast menn við að nota tölur eins og ,,útflutningstekjur” til að sanna fyrir sjálfum sér að þjóðin lifi á einhverju sem hún lifir alls ekki á.Eins og öfugur Jón Sigurðsson. Stundum er eins og sömu málin sitji föst í þjóðfélagsumræðunni án þess að bifast. Það er athyglisvert að bera orð Indriða saman við það sem Halldór Laxness skrifaði í grein sinni – Hernaðurinn gegn landinu árið 1970: Lesa meira …
Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »
5. febrúar, 2009
Blái hnötturinn verður frumsýndur í borgarleikhúsinu í Vasa í Finnlandi þann 17. apríl 2009. Leikstjóri verður Stefán Sturla Sigurjónsson en sviðsmynd er í höndum Vignis Jóhannssonar. Hér má fá meiri upplýsingar um þessa uppfærslu og jafnvel panta miða ef þú skilur finnsku. Þetta er önnur uppfærslan í Finnlandi en áður hefur verkið verið sett upp í Borgarleikhúsinu í Lahti.
Skráð í Blái hnötturinn, Fréttir, Leikrit | Engar athugasemdir »
2. febrúar, 2009

Þá er hún orðin eins árs – stelpan sem hét fyrstu dagana Platína Hafmeyja Andradóttir og fæddist þann 31. janúar 2008. Dagurinn var rólegur, Magga komin fjóra daga fram yfir og ekkert að gerast, gangsetning áætluð föstudagsmorgunninn. Þannig að hún sagði við Andra: Farðu bara á Bessastaði á afhendingu bókmenntaverðlaunanna. Þetta gerist ekki í dag. Lesa meira …
Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »