21. apríl, 2009
Ólafur H. Torfason, RÚV RÁS 2, SDÚ, 17. apríl 2009
DRAUMALANDIÐ * * * *
Ísland 2009. Ls: Þorfinnur Guðnason og Andri Snær
Magnason. Háskólabíó. 1:30 klst.
Draumalandið er að mörgu leyti heilsteyptasta og markvissasta heimildamyndin í okkar fábreyttu kvikmyndasögu. Bragðsterkt handritið byggist á samnefndri metsölubók Andra Snæs sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006 í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Þorfinnur leggur til merkilega og í raun óviðjafnanlega reynslu sína í heimildamyndagerð þar sem skáldlegt flug og tilbúningur svifta raunsæisverkefnum í viðbótarvíddir. Umfjöllun Draumalandsins felst að stærstum hluta í afhjúpandi gagnrýni á verkefni og aðferðir í virkjanamálum hérlendis, með skærustu kastljósi á Kárahnúkavirkjun og samskiptin við ál- og vopnaframleiðandann Alcoa. Sú varnarbarátta fyrir vistkerfunum sem þarna birtist spennir umfjöllunina um umhverfismál upp í finþátta tilfinningalegar kenndir. En það sem ræður úrslitum um ferskan og lífgandi ilm Draumalandsins er hvernig atburðir og þróun síðustu ára eru af listfengi og þrótti sett í víðara íslenskt og erlent samhengi, alveg frá síðari heimsstyrjöld og lýðveldisstofnun 1944. Verkið rímar og stuðlar af margvíslegri kímni – og á köflum hlakkandi kaldhæðni – persónum strítt af því þær sögðu það sem sögðu og gerðu það sem þær gerðu. Tónlistarhlið verksins er magnað stuðlaberg út af fyrir sig hjá Valgeir Sigurðssyni. Um áróðursþætti verksins sér náttúran sjálf.
ÓHT, Rúv Rás 2, Sdú, 17. apríl 2009.
- – - – - – - – - – - – - – - – - – - – - – -
Olafur H. Torfason
Skráð í Draumalandið, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
9. apríl, 2009
Fimmtudaginn 9. apríl, 2009 – Kvikmyndir – Háskólabíó
Tilfinningarússíbani
Draumalandið – *****
Leikstjórn: Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason.
Í gærkvöldi var heimildamyndin Draumalandið í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar frumsýnd. Þorfinnur hafði yfirumsjón með kvikmyndatöku en hann hefur áður hlotið verðskuldaða athygli fyrir heimildamyndir sínar um hagamúsina Óskar, Lalla Johns og Húsey. Handritið byggist á samnefndri metsölubók Andra Snæs en hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006. Bókin hefur verið umtöluð og komið við kaun þjóðarsálarinnar en óhætt er að lofa að myndin verður ekki eftirbátur hennar.Hér er um að ræða heimildamynd með afþreyingargildi á við frambærilegustu frásagnarkvikmyndir. Myndin er allt í senn epísk, glettin og spennuþrungin. Stórbrotið sjónarspil og eldfimt umfjöllunarefni ferja áhorfandann á heljarþröm í gegnum „tilfinningarússíbana“ sem stuðar farþegana til umhugsunar – sama hvort þeir samþykkja málstað myndarinnar eður ei. Metnaður og ástríða aðstandenda skila sér í hverjum ramma og háleit framleiðsluviðmið auka sjónræna nautn áhorfenda. Ómetanlegt gamalt myndefni hefur verið fléttað saman við frásögnina, myndefni af horfinni náttúru, merkum atburðum síðustu aldar og persónulegum minningabrotum úr einkaeign. Fyrir vikið er sköpuð tilfinning fyrir nánd fjölskyldunnar, náttúrunnar, landsins og menningarsögu þess – fyrir arfi sem á það á hættu að falla í gleymskunnar dá. Fortíðin er böðuð rómantískum blæ en samtíminn og náin framtíð fá á sig bölsýnan heimsendabrag sem er í anda annarra grænna heimildamynda síðustu ára en segja má að þessar myndir séu nýstárlegar hrollvekjur eða stórslysamyndir.
Hrynjandi myndefnis og hljóðflétta er álagaþrungin en stórbrotnust eru myndskeiðin af ægifegurð landsins sem fest voru á 35 mm filmu, aðallega úr þyrlu. Segja má að þessi myndskeið miðli „guðdómlegri“ sýn á truflaða náttúrufegurð fyrir og eftir „spjöll“ mannsins. Viðfangsefnið er umhugsunarvert og myndin góð afþreying en áhorfendur mega ekki afsala sér gagnrýninni hugsun.
Lesa meira …
Skráð í Draumalandið | Engar athugasemdir »
2. apríl, 2009
Í kvikmyndinni um Draumalandið ræðum við meðal annars við John Perkins, höfund bókarinnar Confessions of an Economic Hitman. Hann starfaði sem Economic Hitman – efnahagsböðull. Í bók sinni segir hann frá því hvernig hann hafði það að markmiði að koma því til leiðar að bandarísk stórfyrirtæki kæmust í ódýrar auðlindir þriðja heims ríkja og knésetja jafnframt efnahag þeirra – í þeim tilgangi að komast í enn meiri og ódýrari auðlindir. Perkins er hagfræðingur að mennt og ein helsta aðferðin sem beitt var voru falsaðar og ýktar efnahagsspár, að ýkja efnahagslegan og samfélagslegan ávinning af risaframkvæmdum. Niðurstaðan var yfirleitt sú að landinu var útvegað gríðarstórt lán til að byggja vegi, brýr og stíflur – innviði sem þjónuðu einungis hagsmunum fyrirtækisins, peningarnir runnu aldrei í raun og veru til landins – heldur til verktakafyrirtækja eins og Bechtel. Innlendir aðilar nátengdir stjórnvöldum fengu hins vegar nægilega mola til að hagsmunir þeirra færu saman við hagsmuni stórfyrirtækisins. Landið og þjóðin stóð síðan eftir – með gríðarlegar skuldir og raskaðan efnahag eftir stórframkvæmdina. Eina leiðin til að komast út úr vandanum var að selja auðlindir sínar ódýrt – til þessara sömu fyrirtækja. Hver og einn getur dæmt fyrir sig, hvort Ísland lenti í Economic Hitman – eða hvort hérlendir aðilar frömdu efnahagslegt harakiri að eigin frumkvæði með aðferðum Perkins. En hér hafa vissulega verið menn sem passa við starfslýsingu Perkins og ég hef hitt þá og þeir starfa um allan heim. John Perkins segir – Iceland has been hit by an economic hitman – more than one. Í ljósi þess að Landsvirkjun er að fara á hausinn – eftir að hafa útvegað Bechtel risaverkefni og Alcoa ódýrt rafmagn sem sparar Alcoa um 200 milljón dollara árlega, má velta fyrir sér hvort raunverulegur Economic Hitman hafi komið hingað – eða hvort aðferðin sé hreinlega orðin almenn í þessum viðskiptaheimi. Ísland tekur nánast alla áhættuna af Alcoa með því að binda orkuverð við álverð. Rándýrshugsunarhátturinn sést vel í bréfi sem ég hef undir höndum og mælir með kaupum í Century Aluminum sem ætlar að byggja álver í Helguvík. ,,Icelandic energy companies will make extraordinary profits if aluminum prices keep strong – but if aluminum prices weaken – Iceland is not biting the hand that feeds it”. Þetta er samspil innlendra hagsmunaaðila, vonglaðra heimamanna, skorts á upplýsingum og gegnsæi, áróðurs og pólitískrar spillingar – en umfram allt risa sem hefur alþjóðlega yfirsýn og leikur sama leikinn aftur og aftur. John Perkins er með fyrirlestur á Háskólatorgi á mánudaginn klukkan 17:00. Hann verður einnig í Silfri Egils á sunnudag. Kaupið bókina hans – Confessions of an Economic Hitman – magnaður lestur.
Skráð í Draumalandið | Engar athugasemdir »