28. maí, 2009
Kobra heitir einn besti þátturinn sem er gerður í sænska sjónvarpinu SVT2. Þeir gerðu þátt um hrunið mikla og það sem Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður kallar ,,creative revolution”. Skemmtilega klippur og ofursvalur hjá þeim svíum. Þarna er ritskoðun á Kjarvalsstöðum á kjördag – ansi mögnuð sena þar sem listaverk eru borin út á kjördag, þarna er Kira Kira, Steinunni Sigurðardóttir, Georg Hólm og Sigurrós auk þess sem Andri Snær Magnason ekur með þeim um borgartúnið og sýnir þeim Höfða – þar sem kommúnisminn féll – og við hliðina – Kaupþing – þar sem kapítalisminn féll. Þáttinn má sjá á netinu HÉR.
Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
15. maí, 2009

Þeir sem hafa farið á Draumalandið kannast við lokalagið í myndinni. Nokkuð drungalegt Grýlukvæði í útsetningu Valgeirs Sigurðssonar. Myndin hefur slegið aðsóknarmet og sýningar með enskum texta eru á hverjum degi í Háskólabíó klukkan 18:00. Það má hlaða laginu niður ókeypis hér. Liðið sem kemur að þessu lagi er afar gott en Sam Amidon syngur að ég held í fyrsta skipti á íslensku:
THE TITLE TRACK FROM VALGEIR’S ‘DREAMLAND’ (’DRAUMALANDIÐ’) SOUNDTRACK FEATURING BEN FROST, NICO MUHLY & SAM AMIDON. THIS IS AN OLD ICELANDIC FOLKSONG COLLECTIVELY RE-ARRANGED BY THE BEDROOM COMMUNITY.
Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
4. maí, 2009
Viðtal í Morgunblaðinu. Laugardaginn 2. maí, 2009.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
Heimildarmyndin Draumalandið, í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar, hefur vakið mikla athygli og hlotið afar góða dóma. Myndin fjallar meðal annars um stóriðjustefnu stjórnvalda og tekur harða afstöðu gegn henni.
Gagnrýni flokkuð sem áróður
Má ekki segja að þessi mynd sé að ákveðnu leyti áróðursmynd?
„Áróður og ekki áróður. Það sem er að gerast á Íslandi í stóriðjuframkvæmdum er bylting, við bara skiljum það ekki af því að það er búið að normalisera byltinguna. Það var búið að byggja upp raforkukerfi á Íslandi sem var tvöfalt stærra en það sem öll þjóðin þurfti. Síðan var ákveðið að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi í einni framkvæmd. Á allra þjóða mælikvarða er það bylting, hvaða iðnríki í heiminum tvöfaldar orkuframleiðslu sína í einum rykk? Eftir þessa byltingu, þegar orkukerfið hafði verið tvöfaldað og allt efnahagslífið keyrt í botn fyrir eina framkvæmd, fannst mönnum eins og ekki væri nóg að gert og vildu tvöfalda aftur það sem hafði verið tvöfaldað með áframhaldi á Bakka og í Helguvík. Þetta segja menn hiklaust þrátt fyrir að orkufyrirtækin séu í standandi vandræðum. Á Íslandi heitir þetta ekki áhætta – heldur skynsamleg þróun. Þegar þessi öfgafulla stefna mætir síðan landslagi sem er eitt hið dramatískasta sem fólk hefur séð á hvíta tjaldinu þá verða til kröftugar andstæður og auðvitað frábært efni í bíómynd sem við Þorfinnur nýttum okkur til hins ýtrasta.
Gagnrýni var flokkuð sem áróður á Íslandi. Það var jafnvel talið bera vott um óheilindi og illsku að vera gagnrýninn. Vísindamenn sem stóðu í vegi fyrir stórum ákvörðunum fengu á baukinn, misstu lífsafkomuna og starfsframann eða voru lækkaðir í tign. Á hinn bóginn gerðust stjórnvöld nánast upplýsingafulltrúar stórfyrirtækja. Það má líkja þessu við ríki sem stunda mikla tóbaksframleiðslu. Þar fer jafnvel heilbrigðisráðherrann með rulluna um dásemdir light-sígarettna sem heilbrigt og siðferðilegt mótvægi við kínverskar tjörusígarettur og leyfir sér að efast um skaðsemi tóbaks. Það er nákvæmlega það sama sem hefur gerst hér í umhverfismálum. Umhverfisráðherrann talaði um grænan málm og virtist tilbúinn að færa stórfyrirtækjum ósnortin svæði á silfurfati, staði sem ættu að vera á minjaskrá UNESCO. Miðað við eðlilega þróun hér á landi þá hefðum við ekki farið að tala um Þjórsárver fyrr en árið 2215. En vegna þess að álver notar raforku eins og milljón manns kemur upp sú staða að ein kynslóð telur sig þurfa að ákveða í einni svipan hvaða leifar skuli skilja eftir fyrir næstu kynslóðir.”
Lesa meira …
Skráð í Draumalandið, Fréttir, Ýmislegt | Engar athugasemdir »