Íslenska

English

16. nóvember, 2009

Nýtt ljóð í tilefni af degi íslenskrar tungu

 

Geisladrif

 

Stöldrum aðeins við : Geisladrif
- er það ekki fallegt orð?

Hefði amma verið spurð væri geisladrif

sólstafir og skuggaleikur
janúarbirtan yfir Keili
guð og englar í geisladrifi

brátt úreldast geisladrifin

þá verður orðið frjálst

geisladrif

,,ég elska þig og þegar ég hugsa til þín

fyllist hugur minn geisladrifi”

Tags:
Skráð í Fréttir, Ýmislegt | 1 athugasemd »
8. nóvember, 2009

Draumalandið í aðalkeppni IDFA – Amsterdam

Tuschinski kvikmyndahúsið í Amsterdam

Tuschinski kvikmyndahúsið í Amsterdam

Úr Fréttablaðinu 7. nóv 2009

Hátíðin stendur frá 19.-29. nóvember í ár. Um 2.000 myndir sækja um þátttöku á IDFA ár hvert og tæplega 200 myndir eru sýndar á hátíðinni en aðeins 17 myndir voru valdar í keppnina í ár og er Draumalandið ein þeirra. Það er mikið keppikefli kvikmyndagerðarmönnum og framleiðendum að koma myndum sínum á hátíðina og stendur valið yfir sumarlangt fram á haust. Hafa þeir IDFA-menn, eins og flestir forráðamenn stærri hátíða, lagt áherslu á að ná til sín frumsýningum á nýjum myndum og verður því að teljast nokkur árangur hjá framleiðendum Draumalandsins að myndin skuli tæk í aðalkeppni þótt langt sé liðið frá frumsýningu hennar hér á landi. Draumalandið keppir því meðal bestu mynda á heimsmælikvarða. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk heimildarmynd er valin í aðalkeppnina á IDFA og því stór áfangi fyrir íslenska kvikmyndagerð og mikill heiður fyrir kvikmyndagerðamennina sem að myndinni stóðu. Keppt er um aðalverðlaunin, 12.500 evrur, svo eftir nokkru er að slægjast.

Þar að auki hefur Draumalandið verið valin ein af fimm myndum sem munu ferðast um kvikmyndahús í Hollandi meðan á hátíðinni stendur og einnig hefur Ally Derks, stjórnandi hátíðarinnar, valið Draumalandið sem eina af sínum tíu uppáhaldsmyndum og verður hún sýnd í sérstöku viðhafnarprógrammi ásamt þeim myndum að hátíð lokinni. Þannig að það verða margir sem munu sjá Draumalandið af hollenskum þegnum næstu mánuði og bætist þar enn við orðspor þjóðarinnar í Niðurlöndum.

Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa í langan tíma sótt Amsterdam heim meðan á IDFA hefur staðið, flestir þó til að taka þátt í fjáröflunarstefnunni sem þar er haldin í tengslum við hátíðina en þar koma saman allir helstu dagskrárstjóra stöðva í Evrópu og heyra kynningar á nyjum verkefnum í heimildamyndagerð. Ekkert íslensk verkefni komst þar á blað í ár.- pbb

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
2. nóvember, 2009

ASÍ, og bréf frá besta vini þeirra um ,,dirt cheap energy”.

Úr myndaröð Ellerts Grétarssonar

Úr myndaröð Ellerts Grétarssonar af Reykjanesi

Íslensk verkalýðsforysta náði líklega sögulegum lágpunkti sínum undanfarnar vikur í fáránlegri herferð sinni fyrir stórfyrirtækið Century Aluminum og álverið í Helguvík. Það er niðurlægjandi að heyra fullorða menn tala um að eitt fyrirtæki sé forsenda fjárlaga, forsenda stöðugleika og forsenda framtíðarinnar á Íslandi. Í raun snýst barátta þeirra um að stórauka skuldir íslenskra orkufyrirtækja, bæta á þau skuldum sem nemur rúmri Kárahnjúkavirkjun, klára helstu orkukostina á suðvesturhorninu og djöflast sem fyrst í illa undirbúnar framkvæmdir. Lesa meira …

Skráð í Draumalandið | Engar athugasemdir »