Íslenska

English

Nýtt ljóð í tilefni af degi íslenskrar tungu

 

Geisladrif

 

Stöldrum aðeins við : Geisladrif
- er það ekki fallegt orð?

Hefði amma verið spurð væri geisladrif

sólstafir og skuggaleikur
janúarbirtan yfir Keili
guð og englar í geisladrifi

brátt úreldast geisladrifin

þá verður orðið frjálst

geisladrif

,,ég elska þig og þegar ég hugsa til þín

fyllist hugur minn geisladrifi”

Tags:

Ein athugasemd við “Nýtt ljóð í tilefni af degi íslenskrar tungu”


  1. Viðar Hreinsson:

    Takk fyrir þetta ljóð sem verður vörn gegn helgislepjunni það sem eftir er dagsins

Skildu eftir athugasemd

Þú þarft að vera skráð(ur) inn til að geta svarað.