Íslenska

English

2. mars, 2009

Vatnajökull 1956

Þegar afi í Hlaðbæ keypti sér rándýra tölvu fyrir c.a 10 árum síðan hristu margir í fjölskyldunni hausinn, hverjum tókst að pranga þessu inn á gamla kallinn? Núna er hann kominn með alla ættina á Facebook grúppu og deilir með okkur myndasafninu sem er gríðarverðmætt og spannar einhver 70 ár aftur í tímann. Hér eru myndir úr nýjustu facebook færslunni hans afa. Brúðkaupsferðin á Vatnajökul árið 1956.

Skráð í Fréttir, Ýmislegt | 1 athugasemd »
20. febrúar, 2009

Íslandsbanki

picture-142

Ég hef stundum ekið með erlenda blaðamenn Sæbraut og Borgartúnið sem ég segi þeim að heiti Boulevard of Broken Dreams. Þarna er Höfði, þar féll kommúnisminn, þarna er Kaupþing í næsta húsi. Þar féll Kapítalisminn. Þarna gnæfir turninn tómi – hann hýsir sálir verðbréfamiðlara sem aldrei fæddust. Neðar eru höfuðstöðvar Glitnis – rústir reistar á rústum Sambandsins. Núna er Glitnir orðinn  Íslandsbanki aftur. Ég tók þátt í samkeppni ásamt teymi arkítekta um endurbætur á höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand árið 2005, sem við reyndar unnum. Tillagan var ekki byggð – eða hefur enn ekki verið byggð vegna þess að Glitnir fékk stóru strætólóðina og fór í aðra keppni með býsna útópískri niðurstöðu. Tillaga að nýjum höfuðstöðvum Glitnis.

Það verður eflaust rannsóknarefni sagnfræðinga að bera saman þessar tillögur, 2005 annarsvegar og hin frá árinu 2007.

Lesa meira …

Skráð í Arkítektúr, Fréttir, Ýmislegt | 1 athugasemd »
19. febrúar, 2009

Hvíta duftið

Súrál - stærsta innflutningsafurð Íslands.      

Hvíta duftið – innspýting fyrir hagkerfið.

 

Ímyndum okkur að við þyrftum að útskýra sjávarútveg fyrir manni sem þekkir ekki fyrirbæri eins og ,,haf”, ,,fisk” eða ,,bát” eða ,,slor”. Það myndi ganga frekar illa. ,,Já – Íslendingar þeir veiða handa og fótalaust dýr sem er kallað fiskur – en það syndir í svokölluðu hafi, það er saltur vökvi sem umlykur landið. Fiskar eru veiddir af mönnum sem fara út á einskonar málmskeljum sem fljóta á vatninu.” Það má alveg ímynda sér svona samtal við einangraðan ættbálk í Sahara.

Lesa meira …

Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »
6. febrúar, 2009

Hvað á að gera við miðborgina?

MAÓ 1706

Víkin sem Reykjavík er kennd við liggur undir bílastæði.

Margir spyrja sig þessa dagana þegar allt er hrunið og ekki verður byggt á lóð Landsbanka Íslands á stóra malarplaninu milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu. Malarplanið ljóta var ekki alltaf svona ljótt og tilgangslaust. Það var einu sinni fullt af húsum. Og það var ekki aðeins fullt af húsum heldur var þarna einu sinni Vík. Og hvað er svona merkilegt við Víkina sem hefur verið fyllt upp í? Jú – hún er líklega sú Vík sem Reykjavík er kennd við. Lesa meira …

Skráð í Arkítektúr, Fréttir | 3 athugasemdir »
5. febrúar, 2009

Indriði skattstjóri og Halldór Laxness

Indriði H. Þorláksson skrifar grein um efnahagsleg áhrif stóriðju og eru niðurstöður hans forvitnilegar: ,,Í heild má segja að efnahagslegur ávinningur Íslands af starfsemi stóriðjuvera sé lítill og hafi farið minnkandi á síðustu árum. Hann er nú vart meira en 0,1 – 0,2% af þjóðarframleiðslu fyrir hvert álver. Arður af íslenskum auðlindum kemur aðallega fram í hagnaði iðjuveranna og rennur vegna lágra skatta að mestu ósnertur í vasa hinna erlendu eigenda.”

Það er athyglisvert að hér keppast menn við að nota tölur eins og ,,útflutningstekjur” til að sanna fyrir sjálfum sér að þjóðin lifi á einhverju sem hún lifir alls ekki á.Eins og öfugur Jón Sigurðsson. Stundum er eins og sömu málin sitji föst í þjóðfélagsumræðunni án þess að bifast. Það er athyglisvert að bera orð Indriða saman við það sem Halldór Laxness skrifaði í grein sinni – Hernaðurinn gegn landinu árið 1970: Lesa meira …

Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »
5. febrúar, 2009

Blái hnötturinn í Vasa – Sinisen Planeetan Villit Lapset

Blái hnötturinn verður frumsýndur í borgarleikhúsinu í Vasa í Finnlandi þann 17. apríl 2009. Leikstjóri verður Stefán Sturla Sigurjónsson en sviðsmynd er í höndum Vignis Jóhannssonar. Hér má fá meiri upplýsingar um þessa uppfærslu og jafnvel panta miða ef þú skilur finnsku. Þetta er önnur uppfærslan í Finnlandi en áður hefur verkið verið sett upp í Borgarleikhúsinu í Lahti.

Skráð í Blái hnötturinn, Fréttir, Leikrit | Engar athugasemdir »
30. janúar, 2009

Engar smá sögur

Engar smá sögur eru komnar út í nýrri útgáfu með formála höfundar:

Engar smá sögur í nýrri útgáfu.

Engar smá sögur:

Ég var 19 ára þegar ég samdi mínar fyrstu smásögur og smátt og smátt bættust fleiri við ásamt ljóðum og sú hugsun læddist að mér að kannski gæti ég orðið rithöfundur. Ég var á eðlisfræðibraut í Menntaskóla og fór þaðan beint í læknisfræði þar sem ég taldi ekki praktískt að ætla að lifa á skriftum. Það var almennt ekki talið gæfuspor fyrir ungan mann að leggja fyrir sig skáldskap þegar hann gæti bæði leyst jöfnur og lagt gangstéttarhellur. Ég sat því uppi á lesstofu í byggingu verkfræðideildar Háskóla Íslands og skrifaði sögu um Sjómann sem veiddi hafmeyju í stað þess að lesa fósturfræði og sagan um Lögmál árstíðanna var skrifuð fyrir vini mína sem voru að kikna undan námskeiði í raunfallagreiningu. Ég komst ekki í gegnum Numerus Clausus í læknisfræðinni og það hefur eflaust bjargað einhverjum mannslífum. Ég komst í lokaúrtak í inntökuprófi flugumferðarstjóra en féll þar á persónuleikaprófi. Eflaust björguðust þar enn fleiri mannslíf.

Lesa meira …

Skráð í Bækur, Engar smá sögur, Fréttir, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
28. janúar, 2009

Stuðningsfjölskyldan í Bretlandi

James og Gerlinde frá Bodelwyddan.

James og Gerlinde frá Bodelwyddan.

Ég er búinn að fá fréttir af stuðningsfjölskyldunni okkar á Bretlandi. James og Gerlinde búa í Bodelwyddan í Wales. Samkvæmt sérstöku samkomulagi ríkisstjórna okkar þá greiðum við þeim 189.450 krónur á mánuði til 2034. Við fáum af þeim reglulegar fréttir. Synirnir eru að fara í menntaskóla en James er verkfræðingur og var að fá nýjan meðeiganda sem heitir Donald. Gerlinde fór í gallblöðrutöku í nóvember en er að öðru leyti hress og komin aftur í vinnu á bæjarbókasafninu. Hið jákvæða við kreppuna eru auðvitað óvæntar tengingar af þessu tagi. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að styrkja fjölskyldu í Bodelwyddan!

Skráð í Fréttir, Ýmislegt | 1 athugasemd »
28. janúar, 2009

Stjórnin fallin – Washington Post

Jæja þá er stjórnin fallin og sýnist heimurinn dást að þjóðinni frekar en hitt. Fékk að minnsta kosti bréf frá venjulegum breta í gær með yfirskriftinni: ,,Iceland is leading the way”. Hér eru einhverjar greinar og viðtöl sem ég hef flækst í. Yfirleitt talar maður í hálftíma en niðurstaðan í greininni er: ,,Núna étum við slátur”. Hér er smá kvót í Washington Póst þar sem skáldið virðist hafa ruglað saman Róm og Títanic. En hvað um það – menn spiluðu á fiðlu í báðum tilfellum og líklega er Titanic meira lýsandi fyrir ástandið hér. Skipið var ósökkvanlegt og keyrt á fullri ferð gegnum jakahrönglið:

Sjá hér fréttina í Washington Post:
LONDON, Jan. 26 — Iceland’s coalition government collapsed Monday, the first government to fall as a direct result of the global economic turmoil.

Global Financial Crisis Fells Iceland Government

Prime Minister Geir Haarde said he and his cabinet would resign immediately. As personal savings have been wiped out and joblessness has soared, Icelanders — once among the world’s wealthiest people — have taken to the streets in protest, banging pots and pans and throwing eggs and toilet paper at Haarde and other parliamentary leaders.

Protests have mounted throughout Europe, where the political backlash to the crisis is growing. In Ireland, Britain, Spain and other countries where bankruptcies and home foreclosures are rising, polls show that approval ratings of leaders are sinking. In Eastern Europe and Greece, where there is less of a government safety net, protesters have spilled onto the streets by the thousands. Last month’s collapse of the Belgian government, which had been wrestling with long-standing conflicts, was also hastened by the banking crisis, analysts said.

Perhaps nowhere has the economic crash been more spectacular than Iceland, an island with 300,000 residents on the edge of the Arctic Circle. Last fall, its largest banks went bust and the value of its currency plummeted. In recent days, protests intensified as no leader took responsibility for the crash, prompting police to use tear gas for the first time in half a century.

People felt that the government was “playing the violin while the Titanic was sinking,” best-selling Icelandic author Andri Snær Magnason said in a telephone interview from Reykjavik, the capital. “Everybody who has a loan is paying 20 percent interest,” and even those who own modest homes find their salaries cannot cover what is owed, he said. Lesa meira …

Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »
21. janúar, 2009

Þáttur um ASM á ZDF – Þýskalandi…

Abenteuer Wissen

Fluch und Segen Islands

Billiger Strom auf Kosten der Natur?

 

Mithilfe seiner natürlichen Energiequellen produziert Island günstigen Strom im Überfluss und lockt so energiehungrige Industriezweige ins Land. Doch die ungezügelte Ausbeutung seiner Energiequellen hat fatale Folgen für die Tierwelt und die unberührte Landschaft. In der Bevölkerung regt sich daher seit einigen Jahren Widerstand gegen die Pläne von Politik und Wirtschaft. Umweltverschmutzung wird nun erstmals auch für die Isländer zum Thema.

meira

http://abenteuerwissen.zdf.de/ZDFde/inhalt/17/0,1872,7507025,00.html

Skráð í Draumalandið, Fréttir | Engar athugasemdir »