Íslenska

English

28. maí, 2009

Kobra – umfjöllun um hrunið.

Kobra heitir einn besti þátturinn sem er gerður í sænska sjónvarpinu SVT2. Þeir gerðu þátt um hrunið mikla og það sem Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður kallar ,,creative revolution”. Skemmtilega klippur og ofursvalur hjá þeim svíum. Þarna er ritskoðun á Kjarvalsstöðum á kjördag – ansi mögnuð sena þar sem listaverk eru borin út á kjördag, þarna er Kira Kira, Steinunni Sigurðardóttir, Georg Hólm og Sigurrós auk þess sem Andri Snær Magnason ekur með þeim um borgartúnið og sýnir þeim Höfða – þar sem kommúnisminn féll – og við hliðina – Kaupþing – þar sem kapítalisminn féll. Þáttinn má sjá á netinu HÉR.

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
15. maí, 2009

Lokalagið í Draumalandinu – ókeypis hér

Grýlukvæði - exclusive single Cover Art

Þeir sem hafa farið á Draumalandið kannast við lokalagið í myndinni. Nokkuð drungalegt Grýlukvæði í útsetningu Valgeirs Sigurðssonar. Myndin hefur slegið aðsóknarmet og sýningar með enskum texta eru á hverjum degi í Háskólabíó klukkan 18:00. Það má hlaða laginu niður ókeypis hér. Liðið sem kemur að þessu lagi er afar gott en Sam Amidon syngur að ég held í fyrsta skipti á íslensku:

THE TITLE TRACK FROM VALGEIR’S ‘DREAMLAND’ (’DRAUMALANDIÐ’) SOUNDTRACK FEATURING BEN FROST, NICO MUHLY & SAM AMIDON. THIS IS AN OLD ICELANDIC FOLKSONG COLLECTIVELY RE-ARRANGED BY THE BEDROOM COMMUNITY.

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
6. maí, 2009

Sýning á Húsavík annað kvöld, 7. maí klukkan 20:00

Á næstunni

Draumalandið sýnt í Borgarhólsskóla Húsavík

DRAUMALANDIР   

Hvað áttu þegar þú hefur selt allt ?

Kvikmyndasýning í Sal Borgarhólsskóla,Húsavík,fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00 Leikstjórar myndarinnar verða viðstaddir sýninguna og svara fyrirspurnum eftir sýningu hennar.

Menningarmiðstöð Þingeyinga, Húsavík, stendur fyrir þessari sýningu og minnir á ljósmyndasýninguna sem nú er uppi í Safnahúsinu á Húsavík og fjallar um áhrif loftslagsbreytinga í heiminum.

- ÞETTA ER SÝNING SEM ENGIN MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA! -

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
4. maí, 2009

Eins og dávaldur hafi náð tökum á okkur

Viðtal í Morgunblaðinu. Laugardaginn 2. maí, 2009.

Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur

Heimildarmyndin Draumalandið, í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar, hefur vakið mikla athygli og hlotið afar góða dóma. Myndin fjallar meðal annars um stóriðjustefnu stjórnvalda og tekur harða afstöðu gegn henni.

Gagnrýni flokkuð sem áróður

Má ekki segja að þessi mynd sé að ákveðnu leyti áróðursmynd? 

„Áróður og ekki áróður. Það sem er að gerast á Íslandi í stóriðjuframkvæmdum er bylting, við bara skiljum það ekki af því að það er búið að normalisera byltinguna. Það var búið að byggja upp raforkukerfi á Íslandi sem var tvöfalt stærra en það sem öll þjóðin þurfti. Síðan var ákveðið að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi í einni framkvæmd. Á allra þjóða mælikvarða er það bylting, hvaða iðnríki í heiminum tvöfaldar orkuframleiðslu sína í einum rykk? Eftir þessa byltingu, þegar orkukerfið hafði verið tvöfaldað og allt efnahagslífið keyrt í botn fyrir eina framkvæmd, fannst mönnum eins og ekki væri nóg að gert og vildu tvöfalda aftur það sem hafði verið tvöfaldað með áframhaldi á Bakka og í Helguvík. Þetta segja menn hiklaust þrátt fyrir að orkufyrirtækin séu í standandi vandræðum. Á Íslandi heitir þetta ekki áhætta – heldur skynsamleg þróun. Þegar þessi öfgafulla stefna mætir síðan landslagi sem er eitt hið dramatískasta sem fólk hefur séð á hvíta tjaldinu þá verða til kröftugar andstæður og auðvitað frábært efni í bíómynd sem við Þorfinnur nýttum okkur til hins ýtrasta.

Gagnrýni var flokkuð sem áróður á Íslandi. Það var jafnvel talið bera vott um óheilindi og illsku að vera gagnrýninn. Vísindamenn sem stóðu í vegi fyrir stórum ákvörðunum fengu á baukinn, misstu lífsafkomuna og starfsframann eða voru lækkaðir í tign. Á hinn bóginn gerðust stjórnvöld nánast upplýsingafulltrúar stórfyrirtækja. Það má líkja þessu við ríki sem stunda mikla tóbaksframleiðslu. Þar fer jafnvel heilbrigðisráðherrann með rulluna um dásemdir light-sígarettna sem heilbrigt og siðferðilegt mótvægi við kínverskar tjörusígarettur og leyfir sér að efast um skaðsemi tóbaks. Það er nákvæmlega það sama sem hefur gerst hér í umhverfismálum. Umhverfisráðherrann talaði um grænan málm og virtist tilbúinn að færa stórfyrirtækjum ósnortin svæði á silfurfati, staði sem ættu að vera á minjaskrá UNESCO. Miðað við eðlilega þróun hér á landi þá hefðum við ekki farið að tala um Þjórsárver fyrr en árið 2215. En vegna þess að álver notar raforku eins og milljón manns kemur upp sú staða að ein kynslóð telur sig þurfa að ákveða í einni svipan hvaða leifar skuli skilja eftir fyrir næstu kynslóðir.”

Lesa meira …

Skráð í Draumalandið, Fréttir, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
21. apríl, 2009

Fullt hús fyrir Draumalandið á Rás 2

Ólafur H. Torfason, RÚV RÁS 2, SDÚ, 17. apríl 2009

DRAUMALANDIÐ * * * *
Ísland 2009. Ls: Þorfinnur Guðnason og Andri Snær
Magnason. Háskólabíó. 1:30 klst.

Draumalandið er að mörgu leyti heilsteyptasta og markvissasta heimildamyndin í okkar fábreyttu kvikmyndasögu. Bragðsterkt handritið byggist á samnefndri metsölubók Andra Snæs sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006 í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Þorfinnur leggur til merkilega og í raun óviðjafnanlega reynslu sína í heimildamyndagerð þar sem skáldlegt flug og tilbúningur svifta raunsæisverkefnum í viðbótarvíddir. Umfjöllun Draumalandsins felst að stærstum hluta í afhjúpandi gagnrýni á verkefni og aðferðir í virkjanamálum hérlendis, með skærustu kastljósi á Kárahnúkavirkjun og samskiptin við ál- og vopnaframleiðandann Alcoa. Sú varnarbarátta fyrir vistkerfunum sem þarna birtist spennir umfjöllunina um umhverfismál upp í finþátta tilfinningalegar kenndir. En það sem ræður úrslitum um ferskan og lífgandi ilm Draumalandsins er hvernig atburðir og þróun síðustu ára eru af listfengi og þrótti sett í víðara íslenskt og erlent samhengi, alveg frá síðari heimsstyrjöld og lýðveldisstofnun 1944. Verkið rímar og stuðlar af margvíslegri kímni – og á köflum hlakkandi kaldhæðni – persónum strítt af því þær sögðu það sem sögðu og gerðu það sem þær gerðu. Tónlistarhlið verksins er magnað stuðlaberg út af fyrir sig hjá Valgeir Sigurðssyni. Um áróðursþætti verksins sér náttúran sjálf.
ÓHT, Rúv Rás 2, Sdú, 17. apríl 2009.
- – - – - – - – - – - – - – - – - – - – - – -
Olafur H. Torfason

Skráð í Draumalandið, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
1. apríl, 2009

1. apríl

marsbúinn

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »
31. mars, 2009

Thank you for the music…

Jæja þá er myndin rétt að skríða í framköllun úti í heimi. John Perkins – höfundur bókarinnar Confessions of an Economic Hitman kemur til landsins í tilefni sýningarinnar og heldur fyrirlestur í Háskóla Íslands á mánudag. Ekki missa af því. Tónlistin er komin í hús, hún er samin af miklu úrvalsfólki. Valgeir Sigurðsson og Bedroom Community hafa legið yfir myndinni síðustu vikur og samstarfsfólkið er ekkert slor:

Tónlist eftir Valgeir Sigurðsson

Hljómsveitarstjórn, útsetningar:

Nico Muhly

Upptökustjórn, útsetningar, hljóðblöndun: 

Valgeir Sigurðsson

 

Hljóðritað í Gróðurhúsinu

Upptökumenn: Valgeir Sigurðsson, Ben Frost og Paul Evans

Framkvæmdastjóri hljóðvers: Sturla Mio Þórisson

  

Píanó, selesta, dulcitóne, harmóníum: 

Nico Muhly

Fiðla:

Una Sveinbjarnardóttir

Sigrún Eðvaldsdóttir

Ingrid Karlsdóttir 

Kristín Björg Ragnarsdóttir

Rósa Hrund Guðmundsdóttir

Víóla:

Nadia Sirota

Lesa meira …

Skráð í Draumalandið, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
27. mars, 2009

Loftkastali Landsbankans, sædýrasafn eða Alþjóðadómstóll Evu Joly (og mitt framlag til bólunnar)

picture-22

Í hugmyndasamkeppni Landsbankans árið 2004 lagði ég fram fjórar mögulegar hugmyndir um hvernig mætti byggja upp einskismannslandið milli miðborgarinnar og hafnarsvæðisins. Ein hugmynd var rómantíska afturhvarfsleiðin, en ég hef persónulega alltaf verið hrifinn af henni, vegna þess að útópíur má stunda hvar sem er – en sagan á sér alltaf bara einn stað. Lóðin er á landfyllingu og líklega nákvæmlega sá staður þar sem súlur Ingólfs skolaði á land samkvæmt fornum sögum. Hvort lóðin markar þannig upphaf og endi byggðar á landinu er önnur saga. Síðasta hugmyndin var ,,Alþjóðlega rándýra ævintýraleiðin”. Hún var svona:

,,Menn fá stóran alþjóðlegan brjálæðing til að teikna eitthvað alveg rosalegt í staðinn fyrir EKKERT. Eitthvað geðbilað og sjokkerandi. Einhvern Liebeskind, einhvern Alvar Aalto okkar tíma. Hús sem þrífellir borgarstjórnarmeirihlutann, stofnar félag með sér og gegn sér og gerir alla vitlausa. Eitthvað sem tekur menn 50 ár að læra að meta.”

Þessi leið varð ofaná – Bjarke Ingels ásamt BIG group í Danmörku, Einrúm í Glaðheimum, Arkíteó og ég sjálfur lögðum hausinn í bleyti til að búa til Lesa meira …

Skráð í Arkítektúr, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
27. mars, 2009

Hér er viðtal í Marketplace – National Public Radio – USA

Skráð í Draumalandið, Fréttir, Ýmislegt | Engar athugasemdir »
9. mars, 2009

MILLJARÐAR OG MÖRG ÞÚSUND STÖRF! AF ÆÐI OG BÓLUM OG FRÉTTUM SEM BLÁSA UPP BÓLURNAR

picture-18

Ég hef stundum velt fyrir mér hvers vegna æði ganga svona harkalega yfir Ísland, af hverju það er ekki til móteitur við æði, af hverju svona margir sýkjast, af hverju raunveruleikaskynið verður svona ruglað. Kannski er það veikleiki íslenska karlmannsins, þegar dugnaður hans og áræðni kemst í baneitrað samband við tækifæri í heiminum. Þrátt fyrir að vera orðin þróað ríki þá erum við veik fyrir byltingum. Að tvöfalda, að þrefalda, að tífalda eitthvað og verða stærst, ekki miðað við höfðatölu – heldur einfaldlega stærst. Ein ástæðan er kannski skortur á upplýsingum, kannski skortur á menntun eða menningu eða jafnvel röskun á skynjun okkar þannig að við skiljum engin stærðarhlutföll. Við erum smáþjóð og fyrirsagnir birtast í blöðum sem eru absúrd og fáránlegar en birtast manni eins og um skynsemi væri að ræða. Í Morgunblaðinu í mars árið 1987 er þessi fyrirsögn:

„Spá um þróun loðdýraræktar til 1996:
Framleiðsluverðmæti loðskinna gæti orðið 3 milljarðar miðað við sama vöxt greinarinnar og verið hefur.”

Á þessum tíma voru 30 minkabú á landinu. Spáin gerir ráð fyrir tuttuguföldum vexti. Þrír milljarðar var engin smá upphæð árið 1986. Fréttin vísar í skýrslu sem telur fjölskyldubú munu verða 600 árið 1996. Fyrirvarar einhverjir, helst þeir að framboð á fiskúrgangi verði ekki nóg. Mánuði síðar er bjartsýnisfrétt í fullu samræmi við þessa þróun: „Minkastofninn tvöfaldast á þessu ári.” Aðeins þremur árum síðar í apríl árið 1990 er þessi dramatíska fyrirsögn:

„Lodýrarækt:
Þetta er komið á síðasta snúning.
Margir á barmi örvæntingar.”

Lesa meira …

Skráð í Ýmislegt | Engar athugasemdir »